English version Forsíða Tölvupóstur

 

Forsíða

 

 

 

Skjaldamerki Íslands Skattstjórinn í Reykjavík

 Erfðafjárskattur - málsmeðferð skattstjóra

Með lögum um erfðafjárskatt nr. 14/2004 var hlutverki skattstjóra við álagningu erfðafjárskatts breytt.  Er kveðið á um að skattstjóri skuli yfirfara erfðafjárskýrslur og eftir atvikum endurákvarða erfðafjárskatt.  Telji skattstjóri þörf á skýringum skal hann skora á erfingja eða skiptastjóra að leggja fram skýringar og gögn.  Ef skattstjóri telur eignir rangfærðar á erfðafjárskýrslu skal hann endurákvarða erfðafjárskattinn.  

Að lokinni yfirferð sendir skattstjóri öllum erfingjum tilkynningu um lok yfirferðar, annað hvort með tölvupósti eða almennum pósti. Ef ekki finnst tölvupóstfang eða heimilisfang á erfðafjárskýrslu eða í þjóðskrá þá fær erfingi enga tilkynningu.

 

Skattframtal dánarbús. 

Ef skattskil hins látna voru sameiginleg með eftirlifandi maka skal gera grein fyrir tekjum eftir andlát á skattframtali maka.

Ef hinn látni lét ekki eftir sig maka þarf að skila skattframtali fyrir dánarbúið.

Erfingjar telja fram til skatts fyrir bú sem eru undir einkaskiptum. Skiptastjórar telja fram fyrir dánarbú í opinberum skiptum.
Telja ber fram til skatts frá andlátsári til ársins eftir að skiptum hjá sýslumanni er lokið.
Dæmi:
  1. Arfláti lést 2007 og dánarbúinu skipt á árinu 2008.  
    Telja þarf fram fyrir dánarbúið gjaldárið 2008 á skattframtali manns (RSK 1.01).  
    Telja þarf fram fyrir dánarbúið gjaldárið 2009 á „Skattframtal dánarbús“
    (RSK 1.03).

  2. Arfláti lést 2008 og dánarbúinu skipt á árinu 2008. 
    Telja þarf fram fyrir dánarbúið gjaldárið 2009 á skattframtali manns (RSK 1.01).

  3. Arfláti lést 2008 og dánarbúinu skipt á árinu 2009.  
    Telja þarf fram fyrir dánarbúið gjaldárið 2009 á skattframtali manns (RSK 1.01).  
    Telja þarf fram fyrir dánarbúið gjaldárið 2010 á „Skattframtal dánarbús“
    (RSK 1.03).

  4. Arfláti lést 2009 og dánarbúinu skipt á árinu 2009. 
    Telja þarf fram fyrir dánarbúið gjaldárið 2010 á skattframtali manns (RSK 1.01).

Eyðublöð skattframtals og erfðafjárskýrslu má nálgast á www.skattur.is.

 

Algengar spurningar.

Upplýsingar þessar teljast ekki vera bindandi álit skattstjóra. Komi atriði á þessum síðum til ágreinings fyrir skattyfirvöldum verður stuðst við gildandi lög og reglur á hverjum tíma.

Skattlagning á tekjum dánarbúa.
Dánarbú eru lögaðilar og söluhagnaður lögaðila telst ávallt til skattskyldra tekna. Tekjuskattshlutfall dánarbúa er 23,50% skv. núgildandi ákvæðum 2. mgr. 71. gr. laga nr. 90/2003.
 
Ef hlutabréf eru seld eða verðbréf innleyst eftir andlát skattaðila en fyrir lok búskipta hjá sýslumanni þá teljast söluhagnaður og/eða innlausnarvextir til skattskyldra tekna lögaðila, en ef salan/innlausnin fer fram eftir að búskipum er lokið þá teljast söluhagnaður og/eða innlausnarvextir til skattskyldra tekna erfingja.
 
Sala á fasteign hins látna.
Hagnaður af sölu eigna telst til skattskyldra tekna skv. 8. tl. C-liðar 7. gr. laga nr. 90/2003, sbr. 12. - 27. gr. sömu laga. Söluhagnaður telst vera mismunur á söluverði eignar og stofnverði sbr. 12. gr. laga nr. 90/2003.
 
Undanþága frá skattlagningu á söluhagnað íbúðarhúsnæðis í 17. gr. laga nr. 90/2003 gilda bara fyrir menn. Dánarbú eru lögaðilar og söluhagnaður lögaðila telst ávallt til skattskyldra tekna. Tekjuskattshlutfall dánarbúa er 23,50% skv. núgildandi ákvæðum 2. mgr. 71. gr. laga nr. 90/2003.
Ef maður selur íbúðarhúsnæði sem hann hefur eignast við arftölu gilda undanþágu ákvæði 17. gr. laga nr. 90/2003 um söluhagnað arfláta sbr. 23. gr. sömu laga, þ.e. samanlagður eignarhaldstími erfingja og arfláta gildir við útreikning eignarhaldstíma. Tekjuskattshlutfall manna af skattskyldum söluhagnaði íbúðarhúsnæðis er 15,00% sbr. núgildandi ákvæði 3. mgr. 66. gr. laga nr. 90/2003.
 
Hvernig er stofnverð fasteigna fundið?
Stofnverð eigna er að öllu jöfnu upphaflega kaupverðið auk kostnaðar við viðbætur. Stofnverð fasteigna á að koma fram í fylgigögnum skattframtals árið eftir kaupin. Upplýsingar um framkvæmdakostnað eiga að koma fram á húsbyggingaskýrslu með framtali ársins eftir byggingu. Stofnverð eigna sem seljandi átti fyrir árslok 2000 má framreikna skv. verðbreytingarstuðli sbr. þágildandi ákvæði 26. gr. laga nr. 75/1981.
 
Ef seljandi átti fasteignina í árslok 1978 þá má nota gildandi fasteignamat í lok árs 1979 stað stofnverðs sbr. 2. mgr. 15. gr. laga nr. 90/2003.
 
Skattaðila er jafna heimilt að telja helming söluverðs til skattskyldra tekna í stað söluhagnaðar sbr. 3. mgr. 15. gr. laga nr. 90/2003.
 

Leiðbeiningar frá Skattstjóra vegna dánarbúa.

Hér er að finna leiðbeiningar sem gefnar hafa verið út af Skattstofu Reykjavíkur. Til að skoða þær þarf hugbúnað sem getur lesið PDF skjöl. Forritið Adobe Reader má sækja hér.
SK0.91 Fjölskyldunúmer á erfðafjárskýrslum
SK0.92 Dánargjafir - upplýsingablað
SK0.93 Erfðafjárskattur - upplýsingablað
SK0.93.EN Inheritance tax - information sheet
SK0.94 Erfðafjárskattur og framtalsskil
SK0.95 Algengar spurningar vegna dánarbúa

Get Adobe Reader